Sukkari döðlur eru oft kallaðar drottningar daðlanna. Þær eru mjög vinsælar í Evrópu og mið-austurlöndum og eru með dýrustu döðlum sem fáanlegar eru. Þær eru einstaklega bragðgóðar, mjúkar og sætar og bráðna nánast í munni. Sukkari döðlur hafa dálítið sérstakt döðlubragð sem gæti minnt á karamellu.
Sukkari döðlur eru aðeins minni en miðlungsstórar og örlítið ílangar. Þær eru gullinbrúnar að lit með örlítið krumpað hýði sem þó flagnar ekki.
Þyngd 500g.